Read by: Árni Beinteinn Árnason
Language: Icelandic
Length: 2 minutes
Publisher: SAGA Egmont
Release date: 2022-01-31
Í ævintýrinu um Stjörnudalina kynnumst við lítilli fátækri munaðarlausri stúlku sem sér aumur á samferðarfólki sínu og gefur frá sér það litla sem hún á þar til hún stendur uppi allslaus. Stúlkunni er launað örlæti sitt enda sælla að gefa en þiggja eins og segir í orðatiltækinu.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.